Spurning
Hvað er frímúrarastúka?
Svar
Frímúrarastúka er félag frímúrara. Sjálft orðið stúka merkir m.a. lokað rými, en merkir nú annarsvegar þau
húsakynni, sem frímúrarar halda fundi sína í, og hins vegar þann hóp frímúrara, sem mynda félagseiningu innan
Reglunnar.
Hér á landi eru fundir haldnir reglulega í hverri stúku (vikulega/hálfsmánaðar- eða mánaðarlega) frá lokum september
til byrjunar maí ár hvert og yfirleitt á sama vikudegi. Fundirnir hefjast venjulega kl. 19 og enda um kl. 23. Þeir
eru auglýstir í Morgunblaðinu. Ekki er skylda að mæta á stúkufundum, en án nokkuð reglubundinnar fundarsóknar hefur
það lítinn tilgang að vera bróðir í Frímúrarareglunni.