Spurning
Hvað er gert á stúkufundum?
Svar
Einungis frímúrarabræðrum er heimilt að sitja þar fundi. Fundir hefjast og þeim er slitið á hátíðlegan hátt, en það
myndar eins konar ramma um starfið sem fram fer á fundunum. Fundarstörfin eru í samræmi við gamla og fagra siði. Þau
byggjast að nokkru á táknmáli, sem hvetur bræðurna til umhugsunar og íhugunar. Með starfinu er ætlast til, að
bræðrunum sé gert auðveldara að auka þekkingu á sjálfum sér og rækta manngildi sitt. Í Frímúrarareglunni á Íslandi
er þetta starf unnið á kristnum grundvelli, en um trúarskoðanir eða trúfræðitúlkanir er ekki rætt á stúkufundum eða
í Reglunni.
Á venjulegum stúkufundi fer að jafnaði m.a. fram upptaka nýs bróður. Eftir stúkufundinn safnast menn saman til
kvöldverðar og samræðna á óþvingaðan og frjálslegan hátt, þar sem starfið á fundinum er gjarnan rætt. Kvöldstund í
stúkunni er í senn hátíð, gleði og alvara, og er ánægjuleg tilbreyting frá daglegum störfum. Frímúrarareglan veitir
mönnum dýpri skilning á sjálfum sér og afstöðu sinni til þess heims sem þeir lifa í. Hún hvetur til heiðarleika og
drengskapar í hvívetna og getur verið grundvöllur dýrmætra vináttubanda.