Þegar akurinn var plægður

Helgi Bragason

Ég gekki í Mími í desember 1979. Eftir sex ára veru í Mími var ég fenginn til liðs við undirbúning að stofnun nýrrar stúku. Það eru mikil forréttindi að vera þátttakandi í stofnun nýrrar stúku, sérstaklega var undirbúningurinn skemmtilegur undir stjórn Vals Valssonar. Ég var svo heppinn að fá að verða fyrsti söngstjóri í stúkunni Fjölni og lít alltaf til undirbúningsáranna og einnig fyrstu starfsáranna með þakklæti og hlýhug.

Bróðir Sigfús Halldórsson var beðinn um að semja lag, Fjölnislag fyrir hina nýstofnuðu stúku. Sigfús skilaði mér laginu á kasettu þar sem hann spilaði það á píanó. Br. Herbert H. Ágústsson útsetti svo lagið fyrir orgel og einnig fyrir blásarasveit og var það frumflutt þannig á vígsludegi Fjölnis 25. janúar 1987. Á vígsludeginum var bróðir Sigfús á sjúkrahúsi. Ég heimsótti hann á leið á stofnfundinn og færði honum blóm frá okkur bræðrunum. Sigfús var mjög hrærður og þakklátur fyrir þessa kveðju frá okkur. Sigfús kom oft á fundi í Fjölni eftir þetta og þakkaði alltaf fyrir að bræður myndu eftir karlinum á sjúkrahúsi.

Auk Fjölnislagsins var á stofnfundinum flutt tónlist eftir W.A. Mozart þar sem einsöngvarar voru Friðbjörn G. Jónsson, Sigurður Björnsson og Kristinn Hallsson. Nánast allir tiltækir hljóðfæraleikarar spiluðu með eins og Þorvaldur Steingrímsson, Jónas Þórir Dagbjartsson, Björn R. Einarsson og Herbert H. Ágústsson.

Þáverandi stórmeistari reglunnar Gunnar J. Möller kom með þá hugmynd að Fjölnir ætti sér sálm sem sunginn yrði á stofnfundi og á öllum afmælisfundum. Ég lagði til sálminn Þú Guð sem stýrir stjarnaher og var hann samþykktur. Sálmurinn er eftir Valdimar Briem og lagið eftir W. A. Mozart.

Lagið Til Fjölnis sem sungið er eftir borðhald er svo samið af br. Heimi Sindrasyni við texta br. Jóns B. Stefánssonar. Var það fyrst flutt á 10 ára afmæli Fjölnis árið 1997.

Fyrstu árin mættu yfirleitt allir Fjölnisbræður á fund. Ef einhvern vantaði hlaut hann að vera lasinn. Gestir voru margir, stundum jafn margir og Fjölnisbræður.

Eitt er það þó sem skyggði á að mati söngstjóra, en það var að honum fannst heldur ófagur söngur við borðhaldið! Þurfti ég að „skammast“ eitthvað fyrstu árin, en eftir nokkur ár svo ég tali ekki um núna er hann orðinn í fínu lagi.

Embættismannafundirnir voru skemmtilegir og alltaf án einhverra vandræða. Stundum voru þeir haldnir utan Reykjavíkur eins og t.d. í sumarhúsi Árna Lár og David Pitt. Vonandi ekki allt fært til bókar.

Allt frá upphafi hefur starfið í Fjölni verið til fyrirmyndar og stjórnað í kærleika og vinskap. Að fá að vera með frá byrjun er eftirminnilegt og gefið mér mikið. Stúkan stendur svo sannarlega undir kjörorði sínu Caritate.

Helgi Bragason
19.03.2015
Allur réttur áskilinn © 2002 - 2016, Frímúrarareglan á Íslandi - Bríetartúni 5 - 105 Reykjavík - Ísland
Sími: (+354) 510 7800 - Símbréf: (+354) 510 7801 - Netfang: skrifstofa@frimur.is