Upptaka sem ekki gleymist

Þorsteinn Sigurður Þorsteinsson

Kæru bræður.

Það er mikið ílagt og vandaverk að setja niður vitrænt skrifelsi um Regluna okkar, skrifelsi sem lýsi á fullnægjandi hátt jákvæðum vettvangi manna sem með samhentu átaki settu saman umhverfi starfsstúku Frímúrara reglu, sem byggði á ævagömlum siðum og reglum um jöfnuð, mannkærleika og miskunnsemi.

Einnig er það ærið vandaverk að tileinka mér þau margþættu, en um leið jákvæðu og verðmætu áðurgreindu undirstöðuatriði, sem eru öll afar veigamikil.

Undirritaður finnur til ánægjulegrar og jákvæðrar tilhugsunar við upprifjun stúkustarfsins, allar götur frá fallegri inngöngu í mína gömlu stúku Mími og síðan vel samstillt og fallegt upphaf stúkunnar minnar, Fjölnis.

Það er alls ekki laust við að maður fyllist þakklæti fyrir alla þá upphefð og lífsreynslu sem þessir viðburðir skilja eftir, marka djúpt og eru ógleymanlegir.

Ég gekk í stúkuna mína Mímir, síðla árs 1970. Upptakan mun mér aldrei úr minni líða, þekkt landskunn rödd visku og vinsemdar, mælti fram ritúal, áður óþekkt og dulúðugt af hendi Stólmeistarans, bróður Vals Gíslasonar. Honum til fulltingis var bróðir Guðjón Reynisson í Mími sem leiddi mig traustur og þægilegur. Báðir þessir bræður hafa horfið til æðri heima.

Bræður mínir og stjórnendur stúkunnar tóku mér opnum örmum.

Ég minnist svo á þáttöku mína í embættisrekstri beggja stúknanna minna í embætti yngri og eldri stólvarða, ásamt ritara. Skemmtileg og afar lærdómsrík reynsla, þakkarverð af minni hálfu, ómaklegs og reynslulítils bróður.

Frábært veganesti í fyrirséðu brauðstriti í komandi störfum í hinum ytra heimi eins og við köllum svo skemmtilega, Reglubræður.

Ég hef verið í fríi, frá stúkustarfinu þó nokkuð lengi af persónulegum ástæðum, en óhætt er að fullyrða að kominn sé tími á viðsnúning.

Með bróðurkveðju
Þorsteinn Sigurður Þorsteinsson

05.02.2016
Allur réttur áskilinn © 2002 - 2016, Frímúrarareglan á Íslandi - Bríetartúni 5 - 105 Reykjavík - Ísland
Sími: (+354) 510 7800 - Símbréf: (+354) 510 7801 - Netfang: skrifstofa@frimur.is